16.03.2009 15:06:30 / eyrunm
Jæja, ekki búið að vera svo mikið blogg undanfarið enda ekki
mikið búið að vera að gerast hér úti. Átti yndislega helgi á Íslandi 5-8 mars.
Gat knúsað börnin mín í klessu, hitti fullt af fólki sem ég gat knúsað svoldið
meira, svaf í góða rúminu mínu og var innan um fjölskyldu, vini og mitt örugga
góða umhverfi J .
Verst að ég þurfti að fara aftur bara... En það er ekki svo langt eftir, er með
bókað far heim 9. apríl. Páskar verða því í faðmi fjölskyldunnar sem var ekki
öruggt þegar ég kom út.
Mér finnst ég búin að læra helling síðan ég kom hingað út og
það er mjög gott. Heilmikið sem maður lærir ekki á bókum. Er líka búin að
kynnast töluvert af góðu fólki sem ég gæti alveg trúað að ég myndi halda áfram
að vera í sambandi að einhverju leyti.
Osló er líka byrjuð að sýna vor-einkenni sem er mjög
jákvætt. Veðrið farið að vera mildara, það er hitastigið. Töluverður snjór
ennþá en samt hægt að fara utandyra án þess að vera uppdúðaður eins og maður sé
að fara á norðurpólinn... kannski smá ýkjur hehe.
Búin að taka maraþon á þáttum sem ég hef misst af undanfarin
ár. Held ég verði ekki í mikilli þörf næstu mánuði að horfa á mikið.. ekki nema
maður vinni upp ávanann. Hulda stakk upp á því að ég kæmi kannski bara heim með
fullnægða afþreyingaþörf eftir þetta J
Eins og ég sagði, ekki svo mikið að gerast... þangað til
næst.
»
23.02.2009 17:06:30 / eyrunm
... frá einni mestu snjóahelgi sem hefur verið hér eftir áramót. Helgin sem Ragna Björk kom í heimsókn og flugvellinum var lokað vegna veðurs... haha, en við skemmtum okkur samt mjög vel.
»
23.02.2009 10:11:12 / eyrunm
Það var mikið líf og fjör í Osló þessa helgi,
reyndar alveg frá því á svona miðvikudag síðasta eru göturnar á leiðinni heim
til mín búnar að vera fullar af ungu tónlistarfólki og aðdáendum frá öðrum
löndum. Það var semsagt tónlistarhátið ekki svo ósvipuð Airvawes að mér skilst
og þar sem ég bý náttúrulega á rosalega hip og kúl stað þá var extra
blómstrandi mannlíf hjá mér þessa daga. Það var liggur við hálfsorglegt að
fylgjast með því í gær þegar var verið að ganga frá tjöldunum og taka saman
græjur, partýið búið og enn ein vinnuvika að byrja.
Annars er ég búin að vera mjög busy í
félagslífinu líka. Á fimmtudag hitti ég krakka sem eru starfsnemar í sendiráðum
Svíþjóðar, Danmerkur og Íslands. Við sötruðum öl á 2 stöðum og töluðum
skandinavísku megnið af kvöldinu, svona alveg þangað til við vorum farin að
finna smá áhrif bjórsins, sem er eiginlega öfugt við það sem maður hefði
haldið. Þessir krakkar eru skiljanlega svoldið yngri en ég og það er líka hluti
af náminu hjá þeim að fara sem starfsnemi í sendiráð, ekki svo viss að ég fái
mitt metið í námseiningum.
Föstudag var svo ákveðið að skella sér í
"fredagspils" með nokkrum úr vinnunni. Enduðum svo þrjú á tónleikum
tengdum þessari hátíð og pöbbarölti. Laugardag var mér svo boðið í mat til
Huldu boss og hennar manns þar sem framtíðarnámsmöguleikar voru ræddir fram og
til baka og svolítið af stjórnmálum ;-)
Í gærkvöldi fór ég svo með íslenska nemanum á
tælenskan stað og svo með henni og Mayu á mjög spúkí stað að horfa á frekar
mikið spes en mjög skemmtilegt jazz-band. Það var ótrúleg upplifun eiginlega
fyrir margt. Aðallega fannst mér gaman að sjá bandið spila af svo mikilli
innlifun og gleði og svo var náttúrulega bara gaman að hlusta líka. Staðurinn
er rosalega hrár, fólk nær sér í klappstóla undir sviðinu og treður þeim þar
sem þeir komast fyrir, jakkarnir eru geymdir í handklæðahillum við innganginn
og trommaranum finnst greinilega nauðsynlegt að vera með skífusíma, gerviblóm
og viftu til að halda einbeitingu...
Það er, þrátt fyrir blómstrandi félagslíf,
komin nett heimþrá í mig. Hlakka mjög mikið til litlu heimsóknarinnar minnar 5.
mars og að geta knúsað litlu stóru börnin mín alveg í kuðung. Eftir þá heimsókn
eru svo aðeins örfáar vikur eftir hérna. Vinnan er sem betur fer áhugaverð og
ég næ að koma mér svoldið inn í mál sem ég hefði ekki annars gert. Svo er enn
hangandi yfir mér pælingin hvað sé best að gera í framhaldi.....
Skelli inn myndum fljótlega. Já og thx god að það er farið að hlýna hér!!!!
»
17.02.2009 10:00:30 / eyrunm
Svei mér þá, það er bara að detta í 5 vikur á
morgun sem maður er búinn að vera hérna úti. Það er svoldið ótrúlegt.
Síðustu helgi kom Ívar í heimsókn og þar sem ég
græddi aukafrí í vinnunni var tekið mikið sældarlíf bara á langa helgi.
Auðvitað varð ég að sýna umhverfið mitt og sveipa um mig þeirri miklu vitneskju
sem ég bý orðið yfir með aðalstaðina og svona (hóst). En aðallega var bara of
kalt á fimmtudeginum til að vera mikið úti þar sem hitastigið var -18 um
kvöldið.
Á föstudeginum var eldaður ekta íslenskur
hryggur handa fólkinu. Meðan hann var í ofninum hlupum við svo fram og til baka
að leita að réttum búning fyrir prinsinn minn þar sem Star wars er víst orðið
barnalegt (sem ég vissi ekki fyrr en EFTIR að ég keypti svarthöfðabúninginn). En
þá kom nú smá skoðunarferð um stærstu kringluna og nokkrar minni verslunargötur
hérna í nágrenninu. Svo var farið út um kvöldið og norsararnir látnir sýna
okkur hip og kúl staðina.
Laugardegi eyddum við svo í algerri leti, smá
markaðsrölti og dvd glápi.
Þetta var náttúrulega bara alveg yndisleg
helgi, nú vill maður bara helst fá fólk í heimsókn hverja einustu helgi sem
maður verður hérna
Það eru bara 6 helgar eftir í boði og fer fækkandi....
Vinnan er fín. Er að fá eitt og eitt aukaverkefni og svo með blessað þýðingarverkefnið. Deili skrifstofu með honum Nicolas, norska nemanum. Það er af og til reynt að stytta tímann með smá spjalli. Hjá honum snýr það svoldið að því að gera grín að konum og norðmönnum og upphefja töffara og frakka. Hann er s.s. fransk/norskur. Eins og flestir sem mig þekkja geta ímyndað sér er þetta akkúrat uppáhalds umræðuefnin mín. Maður lærir sko á mörgum sviðum.>
>
>Bossinn minn ætlar að koma mér á skíði!
Ég óttast
að koma ekki heim aftur. Mesti möguleikinn á að ég komist heil til baka og án
þess að vera með áverkakæru á mér er ef þetta eru gönguskíði og ég finn
flatlendi til að reyna þau á.>
Í gærkvöldi kíkti ég á pubquiz með Terje og
einhverjum vinum hans. Ég sat nú aðallega hjá og fylgdist með fólki og hló yfir
fáfræði minni. Það var samt fínt að fara út og hitta þessa krakka, aðallega
stelpur. Þá verð ég ekki alveg jafnfeiminn næsta mánudag. Þetta eru jú víst
vikulegar keppnir og frekar mikil alvara í þeim hjá sumum. Ég held ég hafi
vitað svarið við sirka 3 af 60 spurningum....
Á fimmtudag fer ég og hitti aðra skandínavíska
nema sem eru staðsettir í sendiráðum hér út um Osló, nóg að gera í sócíallífinu. Ætlum jafnvel að fá okkur
eins og einn bjór eða svo. Þar er ein íslensk stelpa, 2 krakkar frá Danmörk, 2
frá Finnlandi og kannski einhverjir norsarar. Kannski upáhalds norski neminn
minn mæti á svæðið, hver veit nema maður verði heppin (ergo=kaldhæðni).
Vikuleg veðurspá er aðeins farin að skána. Ekki
nema -8 í dag og spáir hlýnandi, skyggni ágætt, hætt að snjóa, vindur sirka 3
metrar á sek.
Myndir koma bráðum inn.
Já og Dröfn, norsararnir vinna so far sko!!!
»
09.02.2009 10:17:34 / eyrunm
Jæja, þá er þessi líka fína helgi búin. Ragna
Björk var hérna frá föstudegi til sunnudags og ég held bara að við höfum slegið
hraðamet í fleiri en einni aðgerð um helgina, allavega var hún nýtt mjög vel
til margra hluta.
H&M voru náttúrulega þræddar svoldið,
einstsaklega gott að hafa bara 4 svoleiðis hér í nágrenninu, örfáar aðrar búðir
heimsóttar – ein skóbúð jafnvel eða svo ;-), farið á pöbba að horfa á fótboltaleiki, jebb – thats true...,
eldað íslenskar pylsur og drukkið íslenskan bjór, kíkt á lífið, farið í ekta
sunnudagsrúnt upp á fjallið góða með lestinni – upplifunin var álíka og að
lenda í álfaheim allt í einu, snjórinn var ótrúlega mikill og fallegt
landslagið svona í vetrarklæðunum – rétt kíkt á höllina og þinghúsið til að
take a photo og svo náttúrulega rölt um, setið og kjaftað, horft á sjónvarp og
talað um muninn á norsurum og íslendingum. Það var náttúrulega bara notalegt að hafa svona góðan félagsskap til að eyða helginni með.
> >
Semsagt bara alveg hrein snilldar helgi búin. Jú,
einn fugl var skoðaður, það var einhvers konar krákutegund líklega.
> >
Svo tekur við venjulegur mánudagur aftur. Það
er -12 stiga frost í Osló í dag. Það er kalt hér norður í ballarhafi og skiptir
litlu greinilega hvort landið það er. Kannski tímir einhver "uppi"
ekki að setja hitann á bara.
»
04.02.2009 09:47:26 / eyrunm
... og annar líka meira að segja. Gengu bara ágætlega báðir tveir. Var reyndar nett stress á fyrri fundinum og gleymdi nokkrum orðum sem ættu að vera orðin mér eðlislæg en það slapp nú allt saman til. Það sem ég kveið einna mest fyrir í vinnunni þegar ég kom er semsagt yfirstaðið.
Ég bíð og bíð og bíð núna. Ragna Björk er að koma á föstudaginn og það verður farið á nett verslunarflipp held ég. Verður bara æðisleg helgi í alla staði. Er búin að hlera nokkra góða túristastaði en grunar að það verði meira hangið í fatabúðum og veitingabúllum 
Það er ekki mannsæmandi hvað er búið að vera kalt hér undanfarið. -14 takk fyrir!!! Hver bauð þeim kulda eiginlega? Ekki ég allavega. Mig sem hlakkaði svo til að komast aðeins úr kuldanum heima á fróni og fara sunnar á Norðurlöndin. Nei takk, það var ekki að spyrja að því. Sem betur fer er ekki mikill vindur hérna, hugsa ég væri alvarlega farin að skoða farmiða heim annars bara...
Fór og náði mér í kaffi áðan, það gekk vel
»
01.02.2009 12:27:43 / eyrunm
... var frekar róleg bara. Fór í smá könnunarleiðangur og fann til að mynda lestarstöðina sem er jafn stór og fríhöfn á sæmilegasta flugvelli. Það eru alls konar búðir þar og meira að segja klippistofa, já og vínbúð. Var hálf týnd þarna inni bara. Var spurð af túrista um leiðbeiningar og svona fyrstu sekúndurnar kom nett panikk á mig, hvað ætti ég að geta leiðbeint greyinu, en sem betur fer bað hún mig um leiðbeiningar að húsi sem ég labba framhjá á leið í vinnuna þannig ég held þetta hafi sloppið.
Lenti í frekar neyðarlegu í reglulegri kaffiverslun minni einn morguninn í vikunni. Ég labbaði mér inn í búðina og fór að kaffivélinni, setti bollann undir og ýtti á takkann. Eftir smá stund byrjar flóuð mjólk að sprautast út um allt, bollinn dettur á gólfið með kaffinu sem var komið og ég stend hjá með gapandi augu. Hafði nú rænu á að setja bolla fyrir mjólkina loksins, svona eftir að hún var búin að sprautast á gólfið og goskælirinn á móti í svoldinn tíma. Þegar þetta loks hættir sé ég að enginn starfsmaður er frammi í búðinni og bara einn kúnni sem leggur sig fram um að láta sem hann hafi ekki tekið eftir þessu. Fyrsta hugsun var, ég stekk bara út... En svo gat ég það ekki. Þannig ég bíð með vandræðalegan flóttasvip á mér og þegar ég loksins næ sambandi við afgreiðslukonu kallar hún á aðra til að þrífa sem samstundis segir þegar hún sér þetta "varst þetta þú?" og horfir á mig.. Já, hún kannast semsagt við mig orðið og fannst þetta eitthvað sem ég gæti hafa ollið. Góður mannþekkjari jafnvel?? En það var nú allt í góðu sem betur fer en ég hef hinsvegar ekki enn séð ástæðu til að fá mér kaffi þarna síðan.
Í dag ætlaði ég í messu!!! Já, í messu! Íslendingafélagið hittist víst í messu hérna einu sinni í mánuði og ég hitti eina mjög virka á fimmtudaginn sem hvatti mig til að mæta. Hún hvatti mig reyndar líka til að koma í kórinn en ég svór mig frá því við fyrstu hendi, þeirra vegna. Ég var öll tilbúin í gær til að leggja það á mig, búin að finna hvaða bana ég ætti að taka (lest) og búin að skipuleggja tímann og allt. Þegar ég vaknaði í morgun þá hreinlega ákvað ég að það væri skynsamlegt að fresta því. Ég fer kannski bara næst 
»
29.01.2009 13:42:19 / eyrunm
.. manneskjulegri pælingu um ESB hér. Ekki verið að tala um reglugerð númer eða lagasetningu frá. Bara pælingar sem snertu við mér. En ég er svosem soddan nörd líka
. Las yfir samantekt á sameiginlega sjávarútvegsstefnunni í fyrradag, miðað við það sem ég hef kynnt mér þá er Einar K. eina hættan við sameiginlega stefnu ESB. Annað samræmist mikið meira kröfum Íslendinga en almenningur gerir sér grein fyrir. Hagsmunahópar þeirra sem vilja eiga auðlindirnar sjálfir sem Íslendingar, en hirða svo allann gróðann sjálfir sem einstaklingar, neita að leyfa hlutlausum aðilum að tala um ESB. Aðeins þeir sem geta talað neikvætt mega tala fyrir stefnu þeirra. Bananakóngar eru útdauðir eða hvað?
Hér má svo sjá ræðu sem var haldin á Bifröst og fjallar um möguleg áhrif á Ísland gagnvart sjávarútveginum ef Ísland yrði aðildarríki. Þar er svarað algengum spurningum og svarað hreint út.
Það er kalt í Osló. -7 stig í dag. Hlýnaði óneitanlega þegar ég frétti af -12 heima og snjó. Ég er semsagt dottin í mína árlegu bið eftir sumrinu. Ekki seinna vænna! Eyrnatappar eru snilldar uppfinning líka, næstum jafn mikil snilld og örbylgjur!
»
28.01.2009 10:23:00 / eyrunm
Og það er kominn miðvikudagur. Á föstudaginn í
næstu viku kemur Ragna Björk í helgarheimsókn. Jibbí. Mikið ofboðslega á maður
nú góða vini. Annars sagði hún sálf að þetta væri aðallega til að geta skoðað
Norðurlöndin sem hún væri að koma í heimsókn til mín, það væri bara svo hentugt
að hafa aðgang að gistingu um leið..... En ég trúi því mátulega og hlakka til að fara
að sýna einhverjum litlu borgina og það sem ég hef séð að hún hafi upp á að bjóða.
> >
Vá er ég að verða nett pirruð á svefnkostum mínum.
Það er nú bara þannig með mig að það geta aldrei liðið of margir dagar án þess
að eitthvað pirri mig. Ég svef í litlu herbergi með stórum glugga við frekar
umferðarmikla götu. Flestir þeirra sem eiga bíla virðast hafa keypt þá á útsölu
frá Rússlandi því það vantar ýmist í þá púströr eða reimar og ef þeir fara í
gang í fyrstu tilraun og án láta þá er það pottþétt bara gestur sem á leið hjá.
Þegar þessi lætu eru hætt að trufla mann svona upp úr 2 að nóttu þá kemur
frekar rólegt tímabil, alveg fram til rúmlega 6. Þá byrjar sama ballið aftur og
fljótlega fara vörubílarnir líka að koma. Já og það í heyrist meira í þeim en
maður hefði haldið, svona þegar þeim er parkerað við gluggann hjá manni. Þannig
nú er mín að verða svoldið grumpy... fór og keypti mér eyrnatappa og lét það
bara ráðast hvort ég vaknaði við klukkuna eða ekki....
> >
Stjórnmálin á Íslandi eru svoldið áhugaverð í
augum norsaranna. Allavega þeirra sem ég er í samskiptum við. Verst þykir mér
eiginlega að sjá ástandið í gegnum norsarana því þá skilur maður of vel af
hverju þeir glotta að þessu og hlægja inn á milli. En annars hafa þeir fulla
samúð með hinum almenna borgara. Nú er spurning hvort vinkona Steingríms á
þingi hér komi einhverjum hjálparpakka að, ekki hafa þeir viljað hafa okkur í
eftirdragi. Ef það verður rauð-græn stjórn gæti það breyst.
> >
Það er undursamlega dýrt að búa í Osló þessa
dagana. Eitthvað hlýtur fólk að vera að fá í laun hérna. Ég er að vona að ég fái
að upplifa vor í Osló samt, það er svo fallegt hér og ég held að það væri mikið
skemmtilegra að njóta þess í aðeins meiri hita... Spáir ekki nema -11 á
föstudag.
> >
Ég er enn á því að við eigum að sækja um aðild
að ESB. Fór yfir útdrátt á sjávarútvegsstefnu þeirra, og áhrifum hennar á Ísland
ef við yrðum aðilar, í gær. Ég mæli með því að fólk kynni sér málefnin sem það
notar mest sem ástæður fyrir því að við eigum ekki að fara eða öfugt. Það væri
nú leiðinlegt að vera búin að vera gallharður á móti í 10 ár og komast svo að
því að það var vegna misskilnings...... Inn á esb.is er hægt að finna grunnupplýsingar
um flest og einnig hægt að feta sig áfram í upplýsingaflórunni í gegnum
aukalinka. Svo er komin sér síða inn á mbl.is líka. Á heimasíðu ráðuneytanna er
hægt að finna skýrslur og reglugerðir sem snerta þeirra málefni og svona mætti
lengi halda áfram. Við höfum nefnilega aðgang að meiri upplýsingum en við
höldum (eða nennum að nálgast).
»
22.01.2009 20:04:43 / eyrunm
.. og einn dagur til. Hvað skal segja. Það togast margt á allavega. Í vinnunni læri ég meira og meira á hverjum degi. Fæ ný verkefni reglulega og er komin með nóg að gera yfir daginn. Finnst skrýtið að vera heilan dag eins og ég væri í "alvöru" vinnu, sem ég reyndar er svosem, fæ bara óskaplega lítið borgað í peningum ;-) . En kann vel við fólkið sem er að vinna þarna og finnst svoldið spes að vera orðin á kunningja nótum við fólk eins og sendiherrann.
Krakkarnir sem ég bý með eru rosalega fín líka. Maya er meira en vingjarnleg og hjálpleg. Fórum út á föstudagskvöldið og fengum okkur 2 kokkteila. Vorum komnar heim klukkan 1, huh. Næsta helgi er sett á ölsötur og lipstick jungle maraþon.
Á morgun fæ ég að fara á fund með Gylfa Zoega, hagfræðing, sem hann heldur fyrir búrócrasana hérna, það er alveg ótrúlega spennandi og ég veit að fáir trúa því, en það er highligt vikunnar hehe.
Á móti kemur að þetta tekur svoldið tilfinningalega á samt. En heilinn er merkilegt verkfæri......
Er búin að koma við í nokkrum búðum hérna þegar ég er á leiðinni heim úr vinnu (geng í gegnum 2 mjööööög spennandi göngugötur á leiðinni heim...) og sjá ástæður fyrir því að ég ætti að vera að eyða meiri pening akkúrat núna. Það eru bullandi útsölur í gangi hérna ennþá og nógu góðar til að það borgi sig á genginu okkar. Í staðinn veit ég að ég á eftir að vera að safna einni og einni flík á ofurverði hérna í gegnum tímabilið.
Rölti nýja leið heim úr vinnu í dag þar sem ég græddi 15 mínútna "mótmæla-frí" í lok vinnudagsins. Var að senda sms um leið og ég gekk yfir eina götuna (er að verða nokkuð góð í þessu rauðakalla og götuyfirferðardæmi norsaranna) nema það að ég áttaði mig á því að ég hafði aldrei verið þarna áður og var ekkert allt of viss í hvaða átt ég ætti að fara. Eftir smá túristalegt gláp fann ég byggingu sem ég kannaðist við og slapp því við að vera týnd og villt í henni Osló, hjúkk. Þegar ég kom heim var ókunnugur drengur í sófanum (var ég kannski villt?). Nema hann kynnir sig bara og fer að segja mér að Terje sé að leggja sig í smá tíma. Þetta var semsagt "drekkum einn dag frá morgni til kvölds" vinur hans. Terje var reyndar búin að aðvara mig við þessu þannig ég gat eiginlega ekki annað en bara brosað, Terje hafði semsagt ekki lagt í allan daginn og í staðinn var kominn ofboðslega ræðinn drengur sem vildi tala mikið um ástandið á Íslandi.
En jæja, tilgangslaust blogg komið á vefinn. Vonandi verður aðeins meira spennandi að segja eftir helgina.
»
17.01.2009 19:31:51 / eyrunm
Já já, þá lagðist maður í flæking bara. Rölti mér í rólegheitum og flatbotna lakkskóm að versla mér flexi-kort, sem gengur í strætó, tryk og lestir, og svo niður undir borgina að leita að réttu lestinni. Það gekk áfallalaust og ég elti bara fólkið og gerði eins og það. Endaði í lest sem tók mig alveg rosalega hátt upp í fjall, fram hjá Holmenkollen og hverjum skíðabænum á fætur öðrum og endaði á toppi Frogneseteren þar sem litla Osló varð allt í einu pínulítil. Þar gekk ég aðeins um og tók smá myndir, á lakkskónum..., hitti á Svíakrakka sem ætluðu að spyrja mig að einhverju en gátu náttúrulega ekki tjáð sig á ensku þannig ég gat ekkert hjálpað þeim. (Er reyndar búin að tala norsku í öllum búðum hér og gengið bara vel en bara gat ekki gert svíanum það til geðs...). Svo tók ég lestina til baka og komst að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti nauðsynlega að fjárfesta í betri skóbúnaði, svona ef ég myndi droppa þangað aftur seinna. Þess vegna byrjaði ég á því að þræða skóbúðir þegar ég var komin í centralinn aftur og svei mér þá ef það er ekki til slatti af þeim hérna bara. Jæja, þar sem ég var enn túristi þá ákvað ég að skoða strætisvagna kerfið og taka nokkrar myndir. Þær eiga að vera komnar undir myndasöfn hérna efst til vinstri og Oslo1. Strætóinn leiddi mig niður á bryggju og mikið ofboðslega var gaman að rölta þarna um einn, í nýjum og hlýjum skóm, og taka myndir eins og maður væri frá Kína. Hefði verið enn meira gaman að hafa einhvern með sér. En nú er ég hætt að vera túristi, búin að læra helling á strætó og það að ég átti að borga í lestina og var heppin að vera ekki spurð... og komin aftur í hlýju íbúðina. Myndirnar bera þess merki hvað er kalt úti.
»
16.01.2009 18:55:09 / eyrunm
Takk svo mikið fyrir kveðjurnar og bústið.. Brauð er víst ekki það sama og brauð, svo mikið hef ég lært. Það er hægt að rota meðalstóra manneskju auðveldlega með því brauði sem er normalt hér sem máltíðarbrauð. Svo er líka algengt að vera með diet útgáfu af flatkökum og vefja áleggi inn í það. Fékk nákvæma kennslu í þessu í hádeginu. Íslendingurinn ég fann mér náttúrulega bara mjúkt og ljóst brauð samt, hehe. En já, þeir eru klárlega áhættufíklar. Er farin að gera mér það til gamans að stoppa á rauðum köllum meðan hinir labba yfir og sjá þá mana bílana. Gormarnir eru voða hress og kát já, sem betur fer. Þau mega varla orðið vera að því að tala við mann einu sinni. Myndir koma kannski eftir helgi, fer eftir því hversu dugleg ég verð að leika túrista ;-). Sat við gluggann í dag og horfði á ally macbeal snjókomu megnið af deginum, var frekar magnað, með mávana fljúgandi fyrir neðan mig. Fór á minn fyrsta pressufund í dag, en þeir eru daglegir. Þá er sest með sendiherranum og hans næstráðanda og farið yfir fréttir dagsins sem snerta noreg, ísland og esb. Það var spes. Einn dagin á ég að sjá um að halda svona fyrir okkar hönd. Það er stress. En þau eru að undirbúa mig vel hinsvegar. Fékk þýðingarverkefni í dag líka og hélt áfram að skrína fréttir, þýða samantektir og setja inn á síðuna. Svo er spes að vera í starfsnámi þar sem beinlínis er ætlast til að maður hangi á fréttaveitunum. Það er eitthvað sem ég þarf enga þjálfun í allavega. Þegar ég labbaði heim ákvað ég að reyna að treina tímann og fara inn í h&m. Klárlega eiga verslunarferðir ekki við mig því ég var komin út 5 mín seinna þar sem mér leiddist að skoða ein. Kom því bara heim og sat fyrir meðleigjendum mínum í staðinn. Eins og ég segi, stefni jafnvel á túristahegðun um helgina og kannski fylgja myndir eftir það. Þangað til næst... hafið það gott.
»
15.01.2009 17:17:24 / eyrunm
... gekk bara mjög vel. Það var óneitanlega mjög erfitt að kveðja börnin á flugvellinum og það var líka það langerfiðasta við ferðina. Átti virkilega erfitt með mig en sem betur fer tóku þau því mjög létt og sungu meira að segja á leiðinni heim frétti ég. Ég sat í mjög rúmgóðu sæti í vélinni og horfði í framtíðarþriller með tom cruise megnið af leiðinni, næstum eins og heima í stofu ;-) . Þegar á flugvöllinn úti var komið var ég rétt búin að ná að spyrjast fyrir um lestir þegar töskurnar duttu í fangið á mér og um leið og ég labbaði á lestarpallinn kom lestin. Leigubílaröðin beið svo á lestarstöðinni og ég var komin í íbúðina klukkutíma eftir að vélin lenti. Terje tók á móti mér og eftir að hafa skipst á nokkrum enskum orðum við hann þá tók við skoðunarferð um borgina og leit að vinnustaðnum. 2 Klukkutímum seinna var ég búin að finna aðalverslunargöturnar, burger king og h&m, vinnuna og ná mér í norskt símanúmer auk þess sem ég var búin að horfa á fullt af fallegum mannvirkjum og byggingum í leiðinni. Borgin er lítil en falleg, allavega miðbærinn. Í dag var svo fyrsti vinnudagurinn og var ég kynnt fyrir megninu af liðinu og sýnd skrifstofan. Loksins var mér svo skellt fyrir framan tölvu á skrifstofu með 2 norskum nemum og ég held ég sé með besta útsýnið á hæðinni bara, allavega meira en í gluggann á næsta húsi eða vegginn fyrir framan mig. Dagurinn fór svo í að læra á kerfið þarna, læra lykilorð og aðgangsbeiðnir og svo að búa til fréttir og æfa mig í að setja þær inn. Bráðum fara að birtast eftir mann fréttir á esb.is semsagt. Hulda, yfirmaður minn, sýndi mér kjörbúð í hádeginu og fræddi mig um hina ýmsu siði norsaranna. Til dæmis að borða brauð á morgnana og í hádeginu, mat um miðdag og brauð um kvöldið áður en þeir fara að sofa, sem er fyrir 10 vanalega. Svo er annað sem ég hef tekið eftir að er einkenna þeirra sem hér búa, það er alveg stranglega bannað og yfirmáta hallærislegt að líta til hægri eða vinstri þegar gengið er yfir götu og algerlega óleyfilegt að láta bílana stöðva sig í því að fara yfir. Það gildir sérstaklega um konur með barnavagna eða lítil börn. Ég er enn ekki búin að leggja á mig að komast að strætó eða tram leiðinni þannig ég geng á milli bara. Það var reyndar það kalt á heimleiðinni áfram að kannski fer ég í það um helgina að komast að þessu. En ég er bara nokkuð ánægð með þessa 2 fyrstu daga allavega. Hreinlega hissa á hversu vel allt hefur gengið, sérstaklega miðað við fyrri reynslu af norðurlöndum. En vonandi verður þetta bara svona... hafið það gott og bið að heilsa
»
29.12.2008 14:44:01 / eyrunm
Það virðist vera að ég kunni ekki að velja mér stein og sitja sem fastast á honum. Í haust sendi ég inn umsókn til fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Ísland og Noreg um starfsþjálfun, svona af því mér fannst kjörin tímasetning til að koma nafninu mínu þar inn fyrir í umsóknarferlið og geta minnt á mig aftur svo seinna. Skömmu fyrir jól var svo haft samband við mig og ég er bara á leiðinni til Osló takk fyrir!!! Þar verð ég í 3 mánuði og fæ að kynnast frá fyrstu hendi hvernig starfsemin fer fram, hvaða upplýsingaflóð liggur milli þessara staða, Brussel, Osló og Reykjavík og ég fæ að taka þátt í þessu á sennilega einum mest spennandi tímum ESB umræðunnar á Íslandi! Ég get ekki sagt annað en að mig hlakki bara svoldið til.
Ég er búin að vera að leita mér að húsnæði í henni Osló og ég er eiginlega hætt að kvarta undan verðlagi hér á fróni eftir þessa stuttu verðathugun. Meðalstórt herbergi í sameiginlegri leiguíbúð er að fara á svona 80 þúsund á mánuði. Ég var svo heppin að finna eitt á 60 þúsund og ætla mér ekkert að gefa það frá mér. Fyrir peninginn fæ ég heila 9 fermetra til sérafnota, sameiginlegt eldhús og stofu, baðherbergi og aðgang að sjónvarpi. Einnig er inn í þessu hiti, rafmagn og internet. Með mér í íbúðinni verða tveir norsarar, held ég, þrítugur strákur og 27 ára stelpa. Maður ætti þó að læra norskuna vonandi fljótlega og sennilega verða aðeins meiri samskipti en í Svíþjóðarför minni.
Talandi um Svíþjóð. Hingað á Ísland eru að koma 5 kínverjar 2 janúar og er ég búin að lofa að sýna þeim helstu náttúruperlur og merkisstaði suðurlands. Nú vantar mig eiginlega bara einhvern til að taka að sér sjálfboðavinnuna með mér því ekki á ég lengur 7 manna bílinn.
Náminu verður frestað þangað til næsta sumar og verður það í fyrsta sinn síðan 2005 sem ég er ekki stanslaust árið í kring í skóla. Þannig nú er ég bara í jólafríi þangað til 14 janúar en þá legg ég af stað út. Skrýtið!
En tíminn er oft mjög fljótur að líða og þó mig hlakki til að fara út þá kvíðir mig líka helling fyrir því að fara og vera algerlega ein í burtu frá börnunum mínum. Það er eitthvað sem ég veit ekki alveg hvernig ég á eftir að komast í gegnum. En það sem ekki brýtur mann styrkir mann víst bara. Þau verða líka í góðum höndum hér, afi þeirra ætlar að verða einstætt foreldri ungra barna bara, það er ekki að því að spyrja hvað maður á góða að! Enda væri ég ekki búin að gera helming af því sem hefur drifið á daga okka litlu fjölskyldunnar nema fyrir það hversu marga góða hauka í horni maður hefur.
En hér verður svoldið tíðari uppfært á næstunni þar sem manni finnst jú skylda að segja frá því merkilega og minna merkilega sem gerist í svona ferðum. Þangað til næst....
»
26.11.2008 23:16:06 / eyrunm
Hvað er þetta með karldýr og að þurfa að merkja sér yfirráðasvæði? Fresskettir og hundar eru mjög duglegir við að merkja sér þau svæði sem þeir telja sig eiga eða að merkja þau svæði sem þeir telja að þeir þurfi að láta vita að þeir hafi verið á. Ég er bara farin að hallast að því að þetta sé svipað með karlpeninginn, manninn. Nú hef ég glímt við að kenna ungum syni mínu að pissið eigi að fara í klósettskálina en sé ekki ætlað til vegg-gólf eða innréttingaskreytinga í nokkur ár og sjálfsagt er kennsluferlið langt frá því að vera búið. Þegar ég dundaði mér við að þrífa helstu verksummerki í kvöld kviknaði ljós í hausnum á mér. Ég held að ég sé búin að fatta þetta nefnilega. Ef að pissið færi ofaní klósettið þá myndi það blandast vatninu og fara burt af svæðinu með skolpinu. Undir venjulegum kringumstæðum myndi öll lykt og litur hverfa við það. Með því væri sönnunin horfin um að hann hefði verið þarna - sönnun til handa öðrum karldýrum. Vissulega hefur orðið mikil þróun síðustu þúsundir ára eða svo frá því að það var pissað akkúrat eins og hundar, kettir, apar eða hvaða dýr-frumur við vorum í upphafi, en það virðist alveg vanta herslumuninn, allavega svona fyrstu þroskaárin eftir að bleyju sleppir og mismunandi langt frameftir, að læra að hægt er að láta vita með öðrum leiðum að þetta sé yfirráðasvæði - heimili - þeirra staður, eða að þeir komu þarna við.
Mannkynssagan er komin stutt á veg hvað þetta varðar greinilega.
Konur hafa reyndar sínar leiðir líka til að láta vita af sér. Var að tala um kynhvöt kvendýra við vinkonu mína í dag (ýmislegt sem maður ræðir) og þá barst í tal að karlmenn yrðu örugglega fegnir ef við konurnar færum á lóðarí. En hinsvegar benda margar rannsóknir til þess að kynhvöt kvenna eykst mjög í kring um egglos þeirra og þá senda þær, samkvæmt mörgum rannsóknum, frá sér hormón sem eiga að gera karlpeninginn enn meira til i kynlíf. Karlar eru semsagt enn í því að merkja yfirráðasvæði sín og konur eru enn í því að reyna að laða til sín karlmenn til að geta fjölgað sér og viðhaldið tegundinni. Við vorum orðin svo þróuð var það ekki?
Eitt enn sem ég hef verið að velta fyrir mér (það er svo gott að hugsa um aðra hluti en námsefnið þegar skilafrestur er alveg að renna út) en það tengist vissulega "kreppunni". Með auknu atvinnuleysi er ég ósköp hrædd um að fjöldi kvenna á vinnumarkaði eigi eftir að snarminnka. Það er svo margt sem spilar þar inn í. Til dæmis ef hjón eða par þurfa að taka ákvörðun um hvort þeirra eigi að minnka við sig vinnu því þau hafi ekki lengur efni á fullri dagvistun, á skólavistun eða þeim fjölmörgu áhugamálum og íþróttum sem börnin hafa farið í eftir skóla. Hvort ætli sé líklegra, í þorra tilvika, til að ákveða að vera meira heima eða taka á sig launamissir? Einnig, hvort væri líklegra til að ákveða að vera heimavinnandi til að geta aukið heimilislega nýtingu og minnkað þannig útgjöld (sem oft eru dekkuð til fulls af launum og enginn afgangur eftir). Í mörgum fyrirtækjum er fólk í dag hvatt til að taka sér launalaust frí í stað þess að missa vinnuna með uppsögn. Ef tveir aðilar sem deila heimili standa frammi fyrir svona ákvörðun, hvort er líklegra (í blönduðu kynjasambandi auðvitað) til að taka ákvörðun um að vera heima tímabundið? Fagstörfum í boði fer fækkandi, vinnutími minnkar, kaupmáttu heimila minnkar, hvort er konan eða karlinn líklegri til að taka að sér vinnu sem krefst mikillar fjarveru frá börnum??? (þrátt fyrir að það sé ósanngjarnt að mörgu leyti fyrir karlmenn þá bara einfaldlega eru þeir líklegri til þess). Frístundaheimili, leikskólar og afþreyingarmöguleikar ýmsir fyrir börn hverfa hægt og rólega sökum fjárskorts til að halda þeim uppi. Hver ákveður að vera heima með þeim börnum sem eru of ung til að vera ein? Fyrir utan það órétti (sem samt er á vissan hátt skiljanlegt í einstaka tilvikum) að konur á barneignaraldri eiga minni möguleika á starfi en karlmaður á barneignaraldri. Ef báðum aðilum er sagt upp, hvort á meiri möguleika á að finna annað starf? Ég veit fullvel að það er ekki hægt að alhæfa um eitt né neitt í þessu samhengi en ég hræðist það hinsvegar að sú þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár varðandi atvinnumöguleika kvenna eigi eftir ekki einungis að standa í stað heldur fara til baka um þó nokkur ár, ef heldur áfram sem horfir í atvinnumálum þjóðarinnar. Einnig held ég að spili þar inn í of sterk hneigð kvenna til að víkja frekar en að standa í átökum og sú sterka innprentun, sem að hluta á sér uppruna frá náttúrunnar hendi en einnig samfélagslegum gildum, að konan eigi að vera til staðar fyrir heimili og fjölskyldu en karlinn eigi að færa björg í bú. Ég held að það sé mikilvægt að vera meðvitaður um að mörg þau gildi sem við höfum lagt mikið á okkur til að nálgast sem samfélagslega rétt gildi, eru í hættu á tímum þar sem steðjar að fjárhagslegu, atvinnu og hreinlega félagslegu öryggi okkar. Pössum okkur að fara ekki til baka í þeirri þróun sem við höfum þurft að berjast fyrir. Gildi okkar á ekki að vera hægt að selja þrátt fyrir að við þurfum að haga okkur tímabundið á annan hátt en við vorum orðin vön. Enn erum við að berjast fyrir því að vera ekki stimpluð fyrir skoðanir okkar varðandi órétti, ekki viljum við þurfa að berjast fyrir því í 40 ár í viðbót?
»
Síður:
1 2 3 ...
11